sunnudagur, 28. október 2012

Æfingagjöld haustönn 2012

Kæra foreldri/forráðamaður.

Því miður hefur gengið illa að innheimta æfingagjöld á haustönn 2012 hjá handknattleiksdeild ÍR.  Mjög mikilvægt er að við fáum æfingagjöldin greidd á réttum tíma svo við getum borgað þjálfurum laun.  Ef þú hefur ekki þegar greitt þá biðjum við ykkur vinsamlega að drifa í því.

Til að greiða er hægt að fara inn á þessa slóð: 
https://ir.felog.is/ og greiða með kredit korti eða hafa samband við Sigrúnu á skrifstofu ÍR í síma 5877080 eða senda henni póst í sigrun@ir.is 
Sigrún aðstoðar ykkur gjarnan við allt sem tengist 
frístundastyrknum sem þið getið notað til að greiða æfingagjöldin að fullu eða að hluta eftir því sem við á hjá hverjum og einum.

Kveðja

Barna og Unglingaráð handknattleiksdeildar ÍR

 

 

mánudagur, 15. október 2012

Tilmæli til forráðamanna!

Af gefnu tilefni viljum við biðja forráðamenn að sjá til þess að systkini iðkenda séu ekki að hlaupa inn á völlinn á meðan á æfingu stendur, þetta er truflandi fyrir þjálfara og skapar slysahættu.  Einnig viljum við benda á að það er stranglega bannað að leyfa krökkunum að príla í áhorfendabekkjum.  Með von um skilning

Kveðja
Barna og unglingaráð

fimmtudagur, 11. október 2012

ÞÍN VERSLUN Seljabraut

Núna þegar keppnisferðir hjá yngriflokkum út á land eru að fara af stað langar okkur til að benda á að Símon í Þína Verslun á Seljabraut er með góðan afslátt fyrir barna og unglingaflokka ÍR Handbolta.   Hafið samband við Símon og hann gerir mjög vel við ykkur, bæði verðlega og þjónustulega séð!  Þín Verslun Seljabraut er aðalstyrktaraðili Barna og unglingastarf ÍR Handbolta.

 

FACEBOOK síða Þín Verlun Seljabraut

mánudagur, 24. september 2012

Foreldrafundur 7. og 8.fl karla Þriðjudaginn 25 sept

Foreldrafundur 7. og 8.fl karla verður þriðjudaginn 25. sept. kl. 19:30 í ÍR heimilinu.
Það er áríðandi að foreldrar mæti á þennan fyrsta fund forelda, þjálfara og fulltrúa frá barna- og unglingaráði (BOGUR).

Efni fundar.
Kveðja, Þjálfarar og BOGUR

sunnudagur, 2. september 2012

Æfingatafla handboltans tímabilið 2012/2013

Æfingatafla fyrir tímabilið 2012/2013 hjá ÍR handboltanum tekur gildi á morgun, mánudaginn 3. september.

Verið er að vinna við að uppfæra bloggsíður flokkana.
Á aðalbloggsíðu ÍR handboltans er að finna allar upplýsingar tengt handboltanum t.d. um þjálfara og fl.


miðvikudagur, 22. ágúst 2012

ÍR-ungar (árg.2005 og 2006) frábær leið til að kynnast því besta sem við höfum uppá að bjóða hjá ÍR